Rétt er að benda á að ákveðnar reglur og lög gilda um berjatínslu. Við hvetjum alla til að kynna sér rétt sinn til berjatínslu og virða þær reglur sem settar hafa verið. Samstarf við landeigendur eða rétthafa landa er sjálfsagður hlutur til að allir geti notið landsins gæða að þessu leyti.
Eftirfarandi er tíunda grein Reglugerðar um náttúruvernd.
“Öllum er heimil berjatínsla á landsvæðum utan landareigna lögbýla. Á óræktuðu landi er öllum heimilt að lesa villt ber til neyzlu á vettvangi. Óheimilt er að nota tæki við berjatínslu, ef uggvænt þykir að spjöll á góðri hljótist af notkun þeirra. Er Náttúruverndarráði rétt að banna notkun slíkra tiltekinna tækja”.
Þá er almannaréttur einnig tryggður með lögum og reglum. Samanber eftirfarandi málsgrein frá Umhverfisstofnun
” Heimilt er að tína ber, sveppi, fjörugróður og aðrar jurtir en ef tínt er í miklum mæli innan eignarlanda þarf til þess leyfi. Heimilt er að tína ber og jurtir á þjóðlendum og afréttum. Athugið að nokkrar jurtir sem vaxa í íslenskri náttúru eru fágætar og friðaðar og óleyfilegt er að skerða þær.”